36. fundur
fjárlaganefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 19. desember 2013 kl. 09:38


Mættir:

Vigdís Hauksdóttir (VigH) formaður, kl. 09:38
Guðlaugur Þór Þórðarson (GÞÞ) 1. varaformaður, kl. 09:38
Oddný G. Harðardóttir (OH) 2. varaformaður, kl. 09:38
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 09:38
Brynhildur Pétursdóttir (BP), kl. 09:38
Haraldur Benediktsson (HarB), kl. 09:38
Karl Garðarsson (KG), kl. 09:38
Valgerður Gunnarsdóttir (ValG), kl. 09:38
Willum Þór Þórsson (WÞÞ) fyrir ÁsmD, kl. 09:38

Vigdís Hauksdóttir vék af fundi kl. 09:45.Brynhildur Pétursdóttir og Bjarkey Gunnarsdóttir véku af fundi kl. 10:35 til að fara á þingfund.
Vigdís Hauksdóttir kom aftur á fund nefndarinnar kl. 10:40.
Helgi Hrafn Gunnarsson áheyrnarfulltrúi var fjarverandi.

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Bókað:

1) 1. mál - fjárlög 2014 Kl. 09:39
Fjármála- og efnahagsráðuneyti: Maríanna Jónasdóttir og Nökkvi Bragason (kl. 10:03).
Formaður tilkynnti að ekki hvíldi trúnaður á fjárlagatillögum sem fram kæmu á fundinum. Varaformaður tók við fundarstjórn kl. 9:45. Nefndarmenn höfðu ekki gert athugasemd við tillögu formanns sem send var með tölvupósti um að fundur nefndarinnar yrði haldinn fram yfir upphaf þingfundar sem hófst kl. 10:30. Formaður tók aftur við fundarstjórn kl. 10:40.

2) Önnur mál Kl. 10:37
Fleira var ekki rætt og var fundi slitið kl. 10:41.

3) Fundargerðir fjárlaganefndar á 143. þingi Kl. 10:38
Afgreiðslu fundargerðar var frestað.

Fundi slitið kl. 10:41